khf 2025
Bíó Paradís, 101 Reykjavík
15.- 16. mars
kl. 12-17 báða dagana
uM OKKUR
KHF stendur fyrir Kvikmyndahátíð Framhaldsskólanna og er hún skipulögð af nemendum í Fjölbrautaskólanum við Ármúla fyrir framhaldsskólanemendur. Hátíðarstjóri er Róbert Christopher S Scobie. en ásamt honum koma fjölmargir að hátíðinni. KHF hefur verið haldin árlega síðan 2015 og var hún fyrst haldin í Fjölbrautarskólanum við Ármúla og eftir það var hún færð í Bíó Paradís og mun hún líklegast verða þar til frambúðar.
Hugmyndin að hátíðinni varð til í áfanga í FÁ sem fjallar um viðburðastjórnun, þ.e. uppsetningu og skipulag viðburða. Öll hátíðin er skipulögð af nemendum. Þeir sjá um fjármögnun, hönnun á plakati, sýningarskrá, heimasíðu og uppsetningu á dagskrá hátíðarinnar. Víðsvegar af landinu berast stuttmyndir á hátíðina og stefnan er að sem flestir framhaldsskólar taki þátt svo allir framhaldsskólanemendur eru hvattir til að senda mynd og vera virkir þáttakendur í þessum skemmtilega viðburði. Fjölbreytnina skortir ekki þar sem myndirnar koma frá allskonar landshlutum, allskonar einstaklingum og eru í mismunandi flokkum.
Ungt kvikmyndagerðarfólk hefur hér gullið tækifæri til þess að koma sér á framfæri og senda inn mynd og jafnvel fundið innblástur fyrir eigin verkefni með því að horfa á stuttmyndir annarra nemenda. Hvert ár koma þekktir heiðursgestir á hátíðina og meðal þeirra hafa verið Ragnar Bragason, Jón Gnarr og Eva Sigurðardóttir. Í ár er engin undantekning þar sem von er á heiðursgestum sem munu bæði miðla af eigin reynslu og skemmta hátíðargestum svo á KHF gefst gott tækifæri til þess að kynnast fremsta kvikmyndagerðarfólki landsins. Einnig munu þekktir grínistar heimsækja hátíðina og skemmta hátíðargestum. Ekki láta þig vanta á Kvikmyndahátíð Framhaldsskólanna í Bíó Paradís! Aðgangur er ókeypis! Hátíðin er meðal annars styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands og Mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Hafðu samband
heimilisfang
Ármúli 12
Fjölbrautarskólinn við Ármúla
NETFöng
Ath að ekki er svarað tölvupóstum yfir sumar eða eftir hátíðina.
sími
7702010